Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 27. apríl 2015 15:30
Magnús Már Einarsson
Leikmenn AC Milan fá ekki að fara heim af æfingasvæðinu
Mynd: Getty Images
Filippo Inzaghi, þjálfari AC Milan, var brjálaður eftir 2-1 tap gegn Udinese í fyrrakvöld.

Inzaghi hefur ákveðið að halda leikmönnum AC Milan á æfingasvæði félagsins í óákveðinn tíma.

Inzaghi setti tvöfalda æfingu á dagskrá í gær og leikmenn liðsins gistu í kjölfarið á æfingasvæðinu í nótt.

„Hugarfarið í leiknum var rangt. Það eru mjög fáar afsakanir í boði og það eina sem við getum gert er að bretta upp ermar og standa okkur vel í síðustu sex leikjunum því að heiður okkar er í húfi," sagði Inzaghi.

Ítalskir fjölmiðlar segja mögulegt að leikmenn AC Milan þurfi að gista á æfingasvæðinu út tímabilið en liðið hefur valdið vonbrigðum í vetur og situr í tíunda sæti Serie A.
Athugasemdir
banner
banner
banner