Fyndið atvik átti sér stað rétt fyrir upphaf viðureignar BATE Borisov og Gomel í hvítrússnesku efstu deildinni á laugardaginn.
Fyrirliðarnir voru á leið á eigin vallarhelminga eftir dómarakastið, á sama tíma og klappstýrurnar voru á leið af velli eftir sýningu fyrir leikinn.
Fyrirliðarnir voru á leið á eigin vallarhelminga eftir dómarakastið, á sama tíma og klappstýrurnar voru á leið af velli eftir sýningu fyrir leikinn.
Dzmitry Likhtarovich, fyrirliði BATE, var rétt lagður af stað þegar hann var óvænt straujaður fyrir upphafsflautið.
Myndband má sjá hér fyrir neðan þar sem síðasta klappstýran rennur til og fer í svakalega tæklingu sem Likhtarovich sjálfur yrði örugglega stoltur af.
Athugasemdir