Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 27. apríl 2015 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Sanchez ánægður með lífið hjá Arsenal
Mynd: Getty Images
Alexis Sanchez, leikmaður Arsenal á Englandi, segist vera afar ánægður hjá Arsenal og að liðið sé tilbúið til þess að berjast um titilinn á næstu leiktíð.

Sanchez hefur verið í lykilhlutverki í liði Arsenal á þessari leiktíð eða frá því hann kom frá Barcelona fyrir 48 milljónir evra.

Hann hefur gert 21 mark í öllum keppnum og á möguleika að vinna FA-bikarinn með liðinu er liðið mætir Aston Villa á Wembley.

„Mér líður vel í London og hef aðlagast vel. Ég er í þægilegri stöðu hjá Arsenal og það hjálpar mér að borgin er frábær og að ég get unnið að því að vera betri leikmaður," sagði Sanchez.
Athugasemdir
banner
banner