Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 27. apríl 2015 20:45
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Valencia aftur í meistaradeildarsæti
Feghouli gerði þriðja mark leiksins.
Feghouli gerði þriðja mark leiksins.
Mynd: Getty Images
Valencia 4 - 0 Granada
1-0 Javi Fuego ('26)
2-0 Daniel Parejo ('40, víti)
3-0 Sofiane Feghouli ('85)
4-0 Alvaro Negredo ('88)

Valencia lagði Granada auðveldlega af velli í eina leik kvöldsins í spænska boltanum.

Heimamenn komust tveimur mörkum yfir í fyrri hálfleik áður en Sofiane Feghouli og Alvaro Negredo gerðu út um leikinn á lokamínútunum.

Valencia er fjórum stigum frá þriðja sæti deildarinnar, sem gefur þátttökurétt í riðlakeppni Meistaradeildarinnar, en er í harðri baráttu við Sevilla um fjórða sæti deildarinnar sem gefur þátttökurétt í umspili fyrir riðlakeppnina.

Granada er í næstneðsta sæti deildarinnar, sex stigum frá öruggu sæti þegar fimm umferðir eru eftir af tímabilinu.
Athugasemdir
banner