Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 27. apríl 2015 17:00
Magnús Már Einarsson
Vermaelen gæti spilað sinn fyrsta leik með Barca á morgun
Styttist í fyrsta leik.
Styttist í fyrsta leik.
Mynd: Getty Images
Belgíski varnarmaðurinn Thomas Vermaelen gæti loksins spilað sinn fyrsta leik með Barcelona þegar liðið fær Getafe í heimsókn í spænsku úrvalsdeildinni annað kvöld.

Vermaelen kom til Barcelona frá Arsenal á 15 milljónir punda síðastliðið sumar en hann hefur verið meiddur í langan tíma.

Vermaelen meiddist á fæti á HM og fór aftur í aðgerð vegna meiðslanna í desember.

Vermaelen hóf æfingar að nýju í mars og hann er núna klár í slaginn fyrir leikinn annað kvöld.

„Þetta eru mjög góðar fréttir fyrir hann og liðið," sagði Luis Enrique þjálfari Barcelona.
Athugasemdir
banner
banner
banner