mán 27. apríl 2015 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Wenger: Ómögulegt fyrir Chelsea að klúðra þessu núna
Mynd: EPA
Arsene Wenger, stjóri Arsenal á Englandi, telur það ómögulegt fyrir Chelsea að klúðra titilinum núna.

Arsenal og Chelsea gerðu markalaust jafntefli í ensku deildinni í gær en Arsenal þurfti sárlega á sigri að halda til þess að eiga einhvern möguleika í titilbaráttunni.

Chelsea þarf nú sex stig til þess að vinna deildina en Wenger telur að Chelsea geti ekki klúðrað deildinni úr þessu.

„Við vitum þetta núna. Það var mjög mikilvægt fyrir Arsenal að vinna í gær en núna er ómögulegt að ná þeim," sagði Wenger.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner