Manchester United mun leika í varabúningum sínum í úrslitaleik enska bikarsins þann 21.maí næstkomandi.
Í kvöld var varpað hlutkesti í höfuðstöðvum enska knattspyrnusambandsins til að skera úr um hvort Man Utd eða Crystal Palace fengi að leika í sínum aðalbúningi og fór svo að Palace vann hlutkestið.
Sama var uppi á teningnum þegar þessi sömu lið mættust í úrslitum enska bikarsins árið 1990.
Þá gerðu liðin 3-3 jafntefli og mættust því aftur. Þá reyndist Man Utd sterkara og vann sinn fyrsta titil í stjórnartíð Sir Alex Ferguson.
Athugasemdir