Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 27. apríl 2017 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Dembele missir af bikarúrslitaleik Celtic
Moussa Dembele
Moussa Dembele
Mynd: Getty Images
Sóknarmaðurinn eftirsótti, Moussa Dembele, mun missa af bikarúrslitaleik Celtic gegn Aberdeen vegna meiðsla.

Þessi tvítugi leikmaður meiddist aftan í læri í undanúrslitaleiknum gegn Rangers. Celtic vann þann leik 2-0.

Búist er við því að þessi unglingalandsliðsmaður Frakka verði frá næstu sex vikurnar vegna þessara meiðsla.

Dembele hefur farið á kostum á tímabilinu og skorað 32 mörk í 49 leikjum. Hann kom frá Fulham fyrir tímabilið.

Celtic sækist eftir þrennunni í Skotlandi, en liðið er nú þegar búið að vinna deildina og deildarbikarinn. Framundan er bikarúrslitaleikurinn, en hann fer fram 27. maí næstkomandi.
Athugasemdir
banner
banner
banner