Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 27. apríl 2017 10:30
Magnús Már Einarsson
Draumaliðsdeild Azazo - Sævar Freyr velur sitt lið
Hér er lið Sævars.  Smelltu á myndina til að sjá hana stærri.
Hér er lið Sævars. Smelltu á myndina til að sjá hana stærri.
Mynd: Draumaliðsdeild Azazo
Skráning er í fullum gangi í Draumaliðsdeild Fótbolta.net og Azazo. Keppni í Pepsi-deild kvenna hefst í kvöld og hægt er að búa til lið fram að þeim tíma.

Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!

Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi, er klár með sitt lið fyrir sumarið.

„Þetta er ungt og efnilegt lið með blöndu af ungum og efnilegum stelpum og reynsluboltum," segir Sævar.

„Leikkerfið er 3-4-3 Sonný í markinu hefur ekki verið að fá á sig mörg mörk síðustu ár. Í vörninni eru tvær reyndar Málfríður og Guðrún Bentína úr Grindavík sem er með Grindavíkurhjarta af dýrustu gerð og á eftir að koma því liði langt."

„Einnig Lillý Rut frá Akureyri sem spilar eins og mjög reyndur leikmaður þrátt fyrir að vera ung og var valin efnilegust í fyrra. Flott miðja en þar er Sigríður Lára frá ÍBV sem gæti orðið næsta landsliðs stjarna."

„Frammi er Margrét Lára sem varla þarf að kynna. Skaga stelpan Guðrún Karítas sem gæti sprungið út með KR og Guðmunda Selfoss stelpa sem farin er að spila með stjörnunni og hefur verið að skora mikið fyrir þær í vorleikjunum."


Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!

Sjá einnig:
Draumaliðsdeild Azazo - Hallbera velur sitt lið
Draumaliðsdeild Azazo - Dagný velur sitt lið
Draumaliðsdeild Azazo - Edda Sif velur sitt lið
Draumaliðsdeild Azazo - Guðbjörg velur sitt lið
Draumaliðsdeild Azazo - Hemmi Hreiðars velur sitt lið
Athugasemdir
banner
banner
banner