Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fim 27. apríl 2017 20:00
Magnús Már Einarsson
Draumaliðsdeild Eyjabita - Haukur Harðar velur sitt lið
Draumaliðið Hauks er hér.  Smelltu á myndina til að sjá hana stærri.
Draumaliðið Hauks er hér. Smelltu á myndina til að sjá hana stærri.
Mynd: Draumaliðsdeild Eyjabita
Haukur Harðarson.
Haukur Harðarson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Skráning er í fullum gangi í Draumaliðsdeild Fótbolta.net og Eyjabita. Keppni í Pepsi-deild karla hefst á sunnudaginn og hægt er að búa til lið fram að þeim tíma.

Smelltu hér til að taka þátt í Draumaliðsleiknum!

Haukur Harðarson, íþróttafréttamaður á RÚV, er að sjálfsögðu klár með sitt lið fyrir sumarið.

„KR fer inn í þetta mót með fljúgandi start og ég hef trú á góðri byrjun minna manna," segir Haukur um liðið.

„Óskar Örn virkar í fantaformi og gaur sem segist ætla að vera markakóngur og skorar svo fjögur mörk í fyrstu þremur leikjunum fyrir nýtt félag verðskuldar tækifæri í byrjunarliðinu. Óskar og Thomsen er dýrir og því þurfti ég fljótlega að huga að pyngjunni."

„Ég hef trú á góðri byrjum Vals einnig í deildinni og hefði viljað hafa Sigurð Egil Lárusson í liðinu. 9,5 milljóna króna verðmiði stöðvaði þau félagaskipti og í staðinn treysti ég á Kanann eldfljóta, Dion Acoff."

„Höskuldur og Hallgrímur Mar eru skemmtilegir leikmenn sem geta búið til mörk og skorað sjálfir og þeir byrja inn á á miðsvæðinu."

„Ég treysti á Bödda Löpp og stoðsendingar frá honum og svo mun Breiðablik halda hreinu nokkrum sinnum í sumar með Damir fremstan í flokki."

„Andri Rúnar og Elfar Árni eru að fara að setja 7-10 mörk hvor og þeir byrja báðir inn á hjá Vesturbæjarhaukunum. Það er ljóst að það ekkert pláss fyrir viðvaninga í mínu liði og ég verð fljótur að skipta mönnum út ef þeir standa sig ekki!"
sagði Haukur ákveðinn.

Smelltu hér til að taka þátt í Draumaliðsleiknum!

Sjá einnig:
Draumaliðsdeild Eyjabita - Tómas Þór velur sitt lið
Draumaliðsdeild Eyjabita - Kristinn Freyr velur sitt lið
Draumaliðsdeild Eyjabita - Viðar Ari velur sitt lið
Draumaliðsdeild Eyjabita - Árni Vill velur sitt lið
Draumaliðsdeild Eyjabita - Aron Þrándar velur sitt lið
Draumaliðsdeild Eyjabita - Adam Örn velur sitt lið
Draumaliðsdeild Eyjabita - Kristinn Steindórs velur sitt lið
Draumaliðsdeild Eyjabita - Aron Einar velur sitt lið
Draumaliðsdeild Eyjabita - Gary Martin velur sitt lið
Draumaliðsdeild Eyjabita - Hjörvar Hafliða velur sitt lið
Draumaliðsdeild Eyjabita - Ari Freyr velur sitt lið
Draumaliðsdeild Eyjabita - Benni Vals velur sitt lið
Athugasemdir
banner
banner
banner