Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fim 27. apríl 2017 21:58
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Einkunnir Man City og Man Utd: Blind maður leiksins
Daley Blind var maður leiksins að mati Mirror
Daley Blind var maður leiksins að mati Mirror
Mynd: Getty Images
Manchester City og Manchester United mættust í kvöld í baráttunni um Manchester borgina og úr varð markalaust jafntefli í bragðdaufum leik.

Enska blaðið Mirror var gjafmilt á einkunnir leikmannana og fá margir sjö í einkunn.

Manchester City var betri aðilinn í leiknum og hélt boltanum meira og fékk fleiri færi. Mourinho sagði í viðtali að Manchester United hafi spilað upp á jafnteflið.

Slakasti maður vallarins kom úr röðum heimamanna í Manchester City og var það Claudio Bravo og fær hann fimm í einkunn.

Besti maður vallarins kom hins vegar frá gestunum og var það Daley Blind en hann fær átta í einkunn.

Einkunnargjöf Mirror má sjá hér að neðan.

Einkunnir Manchester City: Bravo - 5, Zabaleta - 6, Kompany - 7, Otamendi - 5, Kolarov - 6, Toure - 7, Fernandinho - 6, Sane - 6, De Bruyne - 7, Sterling - 7, Aguero - 7

Einkunnir Manchester United: De Gea - 7, Valencia - 6, Bailly - 7, Blind - 8, Darmian - 6, Carrick - 7, Fellaini - 6, Herrera - 6, Mkhitaryan - 6, Martial - 7, Rashford - 7
Athugasemdir
banner
banner
banner