Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fim 27. apríl 2017 21:30
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Fyrrum leikmaður Newcastle handtekinn
Marveaux í leik með Newcastle
Marveaux í leik með Newcastle
Mynd: Getty Images
Sylvain Marveaux, fyrrum leikmaður Newcastle hefur verið handtekinn í Frakklandi, ásamt þremur mönnum en þeir eru grunaðir um skattsvik og peningaþvætti.

Undanfarið hefur verið rannsakað um leikmannaskipti frá Englandi og Frakklandi og voru handtökurnar hluti af því.

Hinir þrír sem handteknir voru, eru umboðsmenn.

Marveaux leikur núna með franska liðinu Lorient en engin yfirlýsing hefur komið frá félaginu.

Marveaux gekk til liðs við Newcastle árið 2011 og skrifaði undir fimm ára samning en kláraði ekki samninginn sinn og var farinn aftur til Frakklands þremur árum seinna. Hann spilaði 39 leiki fyrir Newcastle og skoraði eitt mark.
Athugasemdir
banner
banner
banner