Steven Gerrard hefur verið ráðinn þjálfari U18 ára liðs Liverpool en hann tekur við starfinu í sumar.
Gerrard sneri aftur til starfa hjá Liverpool í febrúar þegar hann var ráðinn sem þjálfari í akademíu félagsins.
Í dag var staðfest að hinn 36 ára gamli Gerrard þjálfi U18 ára liðið á næsta tímabili.
Gerrard sneri aftur til starfa hjá Liverpool í febrúar þegar hann var ráðinn sem þjálfari í akademíu félagsins.
Í dag var staðfest að hinn 36 ára gamli Gerrard þjálfi U18 ára liðið á næsta tímabili.
Gerrard tekur við af Neil Critchley en hann er að taka við U23 ára liði Liverpool. Mike Garrity þjálfaði áður U23 ára liðið en hann mun starfa áfram í kringum liðið með Critchley.
Steven Gerrard skoraði 186 mörk í 710 leikjum á 17 ára ferli sínum sem leikmaður með Liverpool en hann var fyrirliði liðsins í áraraðir.
Athugasemdir