Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 27. apríl 2017 16:36
Magnús Már Einarsson
Hemmi Hreiðars raðaði inn mörkum hjá bökumarkverðinum
Hemmi var á skotskónum.
Hemmi var á skotskónum.
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Hermann Hreiðarsson skoraði fernu þegar lið skipað fyrrum leikmönnum Portsmouth sigraði lið skipað fyrrum leikmönnum Glasgow Rangers 4-2 í góðgerðarleik í vikunni.

2000 áhorfendur mættu á leikinn en allur ágóði rann í minningarsjóð Lee Rigby. Lee var hermaður sem lést að störfum en samtals safnaðist 1,4 milljón króna í minningarsjóð hans.

Hermann og Darren Anderton voru þekktustu nöfnin í liði Portsmouth en í liði Rangers voru þekktustu nöfnin David Robertson, Rod Wallace, Gregory Vignal, Bert Konterman og Keith Gillespie. Gillespie spilaði reyndar ekki með Rangers á ferlinum en hann tók þátt í þessum leik.

Wayne Shaw lék einnig sem gestaleikmaður í liði Rangers. Shaw komst heldur betur í fréttirnar í febrúar en þá var hann varamarkvörður utandeildarliðsins Sutton í leik gegn Arsenal.

Shaw borðaði böku á bekknum í síðari hálfleik og það vakti heimsathygli. Shaw var hins vegar rekinn frá Sutton daginn eftir. Hægt var að veðja á að Shaw myndi borða böku á bekknum og félagið var ósátt við að hann hafi gert það

Shaw réði ekkert við Hermann í leiknum í vikunni en Eyjamaðurinn fór á kostum og skoraði öll fjögur mörk Portsmouth.
Athugasemdir
banner
banner