Skagamenn vildu ekki halda honum - Ætlar í golfið
Jón Vilhelm Ákason mun líklega ekki vera í boltanum í sumar. Hann staðfestir þetta í samtali við mbl.is.
Honum var ekki boðinn nýr samningur hjá Skagamönnum og ætlar að taka golfið föstum tökum, að hans eigin sögn.
Honum var ekki boðinn nýr samningur hjá Skagamönnum og ætlar að taka golfið föstum tökum, að hans eigin sögn.
„Ég hef hugsað mér að vera í fríi frá fótboltanum og ætli ég taki ekki bara golfið föstum tökum í sumar," sagði Jón við mbl.is.
Hann segir að ÍA hafi ekki viljað halda sér lengur. Það hafi verið vonbrigði fyrst, en síðan hafi hann tekið þá ákvörðun í sátt.
„Samningur minn við ÍA rann út um áramótin og mér var ekki boðinn nýr samningur. Skagamenn vildu ekki hafa mig lengur. Í fyrstu var ég fúll með þá niðurstöðu en það er þægilegt núna."
„Ég hef tekið eina og eina æfingu með Kára hér uppi á Skaga í vetur en bara svona til leika mér. Það voru möguleikar að spila í Inkasso-deildinni en ég nenni ekki að keyra á milli Akraness og Reykjavíkur. Ég veit ekki hvort ég spili með Kára í sumar," sagði hann.
Jón Vilhelm er uppalinn hjá ÍA og hefur leikið með félaginu mestan hluta ferils síns. Hann tók tvö tímabil með Val, en annars hefur hann einungis spilað með Skagamönnum.
Hann lék 16 leiki í deild og bikar fyrir ÍA á síðasta tímabili og skoraði þrjú mörk, en þau komu öll í deildinni.
Athugasemdir