Boltinn byrjar að rúlla í Pepsi-deild kvenna í kvöld. KR á fyrsta leik á morgun en þá leikur liðið við ÍBV.
Katrín Ómarsdóttir er komin heim úr atvinnumennsku og hún er spennt fyrir sumrinu.
„Það er fínt að klára Vestmannaeyjar. Það er alltaf erfiður útivöllur og þetta verður skemmtilegt," sagði Katrín við Fótbolta.net.
„Ég er mjög spennt að vera komin í KR og spila aftur með gamla liðinu mínu."
KR er spáð 6. sætinu í Pepsi-deildinni í sumar en er stefnan ekki sett ofar í Vesturbæ?
„Spár eru bara spár. Við stefnum á að fara í hvern leik og gera okkar besta og við erum með ákveðin markmið sem við viljum ná."
EM í Hollandi er framundan í júlí. Katrín hefur lítið verið í landsliðshópnum að undanförnu en gerir hún sér vonir um að komast í lokahópinn? „Já, ég spila minn leik og kannski kemst ég þá inn," sagði Katrín.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir