Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 27. apríl 2017 23:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Draumaliðsdeild Azazo: Skýrslur og bónusstig kvöldsins
Katrín skilaði þremur stigum.
Katrín skilaði þremur stigum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Azazo
Pepsi-deild kvenna hófst með látum í kvöld. Fjórir leikir á dagskrá og það var mikið stuð. Draumaliðsdeild Azazo er í fullum gangi og þar fá leikmenn stig miðað við frammistöðu.

Hér að neðan má sjá skýrslurnar úr leikjum kvöldsins í Pepsi-deild kvenna og bónusstigin í Draumaliðsdeild Azazo.

Maður leiksins fær þrjú bónusstig á meðan næst-besti leikmaður vallarins fær tvö stig. Hér að neðan má sjá bónusstig kvöldsins.

Þór/KA 1 - 0 Valur
3 - Sandra Stephany Mayor Gutierrez (Þór/KA)
2 - Lillý Rut Hlynsdóttir (Þór/KA)

Breiðablik 1 - 0 FH
3 - Rakel Hönnudóttir (Breiðablik)
2 - Lindsey Harris (FH)

Haukar 1 - 5 Stjarnan
3 - Katrín Ásbjörnsdóttir (Stjarnan)
2 - Guðmunda Brynja Óladóttir (Stjarnan)

Fylkir 1 - 0 Grindavík
3 - Ásta Vigdís Guðlaugsdóttir (Fylkir)
2 - Jasmín Erla Ingadóttir (Fylkir)

Umferðinni lýkur annað kvöld þegar ÍBV fær KR í heimsókn og við minnum á Pepsi-mörkin að leik loknum. Þau eru í opinni dagskrá.

Við biðjum alla þá sem eru að taka þátt í leiknum að sýna þolinmæði í bið eftir stigum. Þau koma inn á endanum!
Athugasemdir
banner
banner
banner