Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fim 27. apríl 2017 19:39
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Pepsi kvenna: Þór/KA sendir skýr skilaboð
Sandra skoraði eina mark leiksins og tryggði Þór/KA sigur í fyrsta leik
Sandra skoraði eina mark leiksins og tryggði Þór/KA sigur í fyrsta leik
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Þór/KA 1 - 0 Valur
1-0 Sandra Stephany Mayor Gutierrez ('9)

Þór/KA fékk Val í heimsókn í opnunarleik Pepsi-deildar kvenna í kvöld. Fyrir leik liðanna var Þór/KA spáð fjórða sæti, bæði hjá Fótbolta.net og hjá forráðamönnum liðanna. Valur var hins vegar spáð Íslandsmeistaratitlinum af forráðamönnum liðanna og 2. sæti hjá Fótbolta.net.

Það voru Þór/KA sem byrjaði af krafti og skilaði það marki strax á 9. mínútu. Markið skoraði Sandra Stephany Mayor Gutierrez og fær hún því þann heiður að skora fyrsta mark deildarinnar í sumar!

Þór/KA hafði yfirhöndina í fyrri hálfleik en náðu ekki að bæta við og hálfleikstölur því 1-0.

Akureyrarkonur héldu yfirhöndinni í síðari hálfleik og náði að halda Valskonum frá marki sínu.

Ekkert mark var skorað í síðari hálfleik og lokatölur því 1-0 fyrir Þór/KA.

Akureyrarkonur senda því skýr skilaboð strax í fyrsta leik, liðið ætlar sér að vera í toppbaráttunni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner