Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 27. maí 2015 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Áhorfendur völdu Alexis Sanchez sem leikmann tímabilsins
Mynd: Getty Images
Alexis Sanchez hefur verið kjörinn besti leikmaður tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni af áhorfendum.

Eden Hazard var kjörinn leikmaður tímabilsins af dómnefnd á vegum ensku úrvalsdeildarinnar og einnig af atvinnumannasambandi Englands en Alexis hafði betur í áhorfendakosningunni.

Alexis skoraði 24 mörk fyrir Arsenal á tímabilinu, 16 í 35 úrvalsdeildarleikjum, eftir að hafa verið keyptur frá Barcelona í upphafi tímabils.

Alexis spilar lokaleik sinn fyrir Arsenal á tímabilinu þegar liðið mætir Aston Villa í úrslitaleik FA bikarsins næsta laugardag.
Athugasemdir
banner