Þýski miðjumaðurinn, Sami Khedira, er á leiðinni til Juventus frá Real Madrid samkvæmt ítölskum miðlum.
Það var fyrir löngu orðið ljóst að Khedira yrði ekki áfram í herbúðum Real Madrid á næsta tímabili en hann er að klára samning sinn við spænska stórveldið í sumar.
Vitað var af áhuga hvaðanæva úr heiminum og var þessi 28 ára Þjóðverji mikið orðaður við enska boltann og þá helst Arsenal en nú virðist nánast frágengið að hann spili í Serie A næstu fjögur árin hið minnsta.
Sky fréttastofan hefur heimildir fyrir því að Khedira muni mæta í læknisskoðun hjá Juventus í kvöld eða á morgun og í kjölfarið skrifa undir fjögurra ára samning
Juventus fer af stað á miklum krafti í kaupum en þrátt fyrir að tímabilinu sé langt í frá lokið hjá ítalska stórliðinu hefur það gengið frá kaupum á hinum eftirsótta framherja Palermo, Paulo Dybala, og virðist nú vera komið langleiðina með að fá Sami Khedira til liðs við sig.
Athugasemdir