Daily Mail hefur tekið saman lista yfir tíu bestu kaupin í ensku úrvalsdeildinni á nýliðnu tímabili. Njótið!
10. Bojan Krkic kom til Stoke frá Barcelona á 1,3 milljón punda. Var frábær með Stoke áður en meiðsli enduðu tímabilið hans.
9. Dusan Tadic kostaði Southampton 10,9 milljónir punda en dýrlingarnir sjá ekki eftir að hafa borgað þá upphæð fyrir Serbann.
8. Gylfi var númer 3-5 á lista yfir flestar stoðsendingar í ensku úrvalsdeildinni í vetur. Forráðamenn Swansea brosa væntanlega eftir að hafa sent Ben Davies og Michel Vorm til Tottenham í staðinn.
7. Ander Herrera kostaði Manchester United 29 milljónir punda og stóð sig vel á fyrsta tímabili sínu á Englandi.
6. Saido Mane kom til Southmapton frá Red Bull Salzburg á 11,8 mlljónir punda. Fólk setti spurningamerki við verðmiðann í fyrra sumar en eftir tíu mörk á tímabilinu eru þær efasemdir horfnar.
4. Leicester náði á ótrúlegan hátt að fá argentínska miðjumanninn Esteban Cambiasso frítt í fyrrasumar. Sá um að draga vagninn í fallbaráttunni með ástríðu sinni.
3. Diego Costa skoraði 20 mörk á sínu fyrsta tímabili á Englandi eftir að hafa komið frá Atletico Madrid á 32 milljónir punda.
2. Cesc Fabregas var frábær á miðjunni hjá ensku meisturunum eftir að hafa komið aftur í enska boltann frá Barcelona á 27 milljónir punda.
Athugasemdir