Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 27. maí 2015 17:00
Magnús Már Einarsson
Wolfsburg breytir treyjunni til minningar um Junior Malanda
Svona verður treyja Wolfsburg á næsta tímabili.
Svona verður treyja Wolfsburg á næsta tímabili.
Mynd: Twitter
Wolfsburg hefur ákveðið að vera með sérstaka merkingu á treyjum sínum á næsta tímabili til minningar um Junior Malanda.

Hinn tvítugi Junior lést í bílslysi í byrjun árs. Bifreið sem hann var í endaði á tré og Junior kastaðist út úr bílnum þar sem hann var ekki í bílbelti.

Junior hafði leikið tíu leiki með Wolfsburg á tímabilinu áður en hann lét lífið.

Til minningar um Junior ætlar Wolfsburg að leika með grænt hjarta á treyjum sínum á næsta tímabili.

Inni í hjartanu er síðan talan 19 en það var treyjunúmer Junior.
Athugasemdir
banner
banner
banner