Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 27. maí 2016 12:19
Jóhann Ingi Hafþórsson
Laugardal
Borgunarbikarinn: Víkingur og Valur mætast í 16-liða
Víkingur og Valur mætast í 16-liða úrslitum.
Víkingur og Valur mætast í 16-liða úrslitum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dregið var í 16-liða úrslitum Borgunarbikarsins í Laugardalnum í dag.

Níu Pepsi deildarlið voru í pottinum, fjögur 1. deildarlið, tvö 2. deildarlið og svo var Víðir eina liðið úr 3. deildinni.

Þrír úrvalsdeildarslagir eru í 16-liða úrslitunum. Víkingur og Valur mætast, Stjarnan og ÍBV og svo loks fær ÍA, Breiðablik í heimsókn.

Selfoss sem vann KR í síðustu umferð mæta 3. deildar liði Víðis en dráttinn má sjá í heild sinni hér.

16-liða úrslit Borgunarbikarsins:
Víkingur R. - Valur
Stjarnan - ÍBV
Vestri - Fram
Þróttur R. - Grótta
Grindavík - Fylkir
Selfoss - Víðir
FH - Leiknir R
ÍA - Breiðablik

Athugasemdir
banner