fös 27. maí 2016 15:00
Ívan Guðjón Baldursson
Busquets framlengir til 2021 - Falur fyrir 200 milljónir
Mynd: Getty Images
Spænski miðjumaðurinn Sergio Busquets er búinn að skrifa undir fimm ára samning við Barcelona.

Samningurinn gildir til 2021 og er sérstakt ákvæði sem gerir félaginu kleift að hafna öllum tilboðum undir 200 milljónum evra, sem eru um það bil 28 milljarðar íslenskra króna.

Busquets verður 28 ára gamall í sumar og er hann uppalinn Börsungur og hefur leikið fyrir Barca allan sinn feril. Busquets er þekktur fyrir að vera traustur miðjumaður með afburða sendingatækni.

Miðjumaðurinn á 83 landsleiki að baki fyrir Spán og hefur unnið ógrynni titla með bæði Barca og spænska landsliðinu á síðasta áratug.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner