Hörkuleikur í Garðabæ endaði að lokum illa fyrir lærisveina Ejubs í Víkingi í kvöld, hvernig var tilfinningin?
"Súr, mjög súr! Maður spilar allan daginn og svo kemst maður ekki áfram. En það þarf víst eitt lið að sitja eftir."
"Súr, mjög súr! Maður spilar allan daginn og svo kemst maður ekki áfram. En það þarf víst eitt lið að sitja eftir."
Lestu um leikinn: Stjarnan 9 - 8 Víkingur Ó.
Hann var býsna ánægður með sína menn.
"Mér fannst Víkingur spila virkilega vel í kvöld. Taktíkin gekk vel og við náðum að vinna á þeirra veikleikum. Við náðum að halda út alveg þangað til á síðustu tveim mínútunum og klára leikinn. Mér fannst við eiga að gera betur þar þó við værum einum færri þegar þeir jöfnuðu. Þetta var nánast fullkominn leikur".
Það gekk á ýmsu í meiðslum hjá Víkingum í kvöld og sjúkraþjálfarinn var í yfirvinnu þennan leik, eitthvað að frétta af því öllu?
"Það hefði verið gaman að taka saman hversu margar mínútur við vorum einum færri, það var örugglega samtals einhverjar 20 - 30 mínútur. Ég vona að við fáum þessa menn til baka. Við ætlum að senda Bjössa upp á slysó því við viljum vera vissir með hann eftir höfuðhöggið og Þorsteinn virðist vera nefbrotinn, vonandi verða þeir klárir á mánudaginn. Kenan fór svo að finna til í hnénu og við urðum að taka hann útaf".
Nánar er rætt við Ejub í viðtalinu sem fylgir.
Athugasemdir