Kaka hefur verið kallaður inn í brasilíska landsliðshópinn fyrir Copa America sem er framundan í Bandaríkjunum.
Kaka kemur inn í hópinn fyrir Douglas Costa sem verður ekki með á mótinu vegna meiðsla.
Hinn 34 ára gamli Kaka hefur einungis spilað 60 mínútur með brasilíska landsliðinu undanfarin þrjú ár.
Kaka kemur inn í hópinn fyrir Douglas Costa sem verður ekki með á mótinu vegna meiðsla.
Hinn 34 ára gamli Kaka hefur einungis spilað 60 mínútur með brasilíska landsliðinu undanfarin þrjú ár.
Kaka var áður lykilmaður í liðinu en hann hefur skorað 29 mörk í 91 landsleik á ferli sínum.
Brassar eru í B-riðli á Copa America með Ekvador, Haítí og Perú.
Athugasemdir