Reading hefur ákveðið að reka knattspyrnustjórann Brian McDermott en félagið staðfesti þetta í dag.
McDermott tók við Reading á nýjan leik í desember síðastliðnum.
Hann stýrði liðinu áður frá 2009 til 2013 en þá lék Gylfi Þór Sigurðsson meðal annars undir hans stjórn um tíma.
McDermott tók við Reading á nýjan leik í desember síðastliðnum.
Hann stýrði liðinu áður frá 2009 til 2013 en þá lék Gylfi Þór Sigurðsson meðal annars undir hans stjórn um tíma.
Reading endaði í 17. sæti í Championship deildinni á nýliðnu tímabili og félagið hefur nú ákveðið að fá nýjan mann í brúna.
Orðrómur er um að Jaap Stam, fyrrum varnarmaður Manchester United, sé efstur á óskalista félagsins sem næsti stjóri.
Athugasemdir