Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 27. maí 2016 19:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Simeone: Ætla að spila með 11 inn í teig hjá Real Madrid
Diego Simeone
Diego Simeone
Mynd: Getty Images
Diego Simeone, þjálfari Atletico Madrid segist ætla að sækja til sigurs á móti Real Madrid í úrslitum Meistaradeildar Evrópu sem fram fer á morgun.

Einhverjir hafa gagnrýnt leikstíl Simeone hjá Atletico og segja hann vera varnarsinnaðan en liðið er búið að slá út Barcelona og Bayern Munchen á leið sinni í úrslitin.

Arturo Vidal, miðjumaður Bayern Munchen, kallaði til að mynda leikstíl Atletico ljótan.

„Ég ætla að spila með alla 11 í vítateig Real Madrid." sagði Argentínumaðurinn hlægjandi. „Svona ummæli fá mig til að hlægja stundum."

„Hvorugt liðið mun breyta miklu síðan við mættumst í síðasta úrslitaleik. Við erum með meira breytt lið en leikurinn spilast svipað."
Athugasemdir
banner
banner
banner