lau 27. maí 2017 13:28
Viktor Andréson
Byrjunarlið KA og Víkings R.: Róló aftur í markið
Róbert Örn snýr úr meiðslum.
Róbert Örn snýr úr meiðslum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KA og Víkingur R. mætast í fyrsta leik 6. umferðar Pepsi-deildar karla.

Mikið hefur gengið á hjá Víkingum undanfarnar vikur en Milos Milojevic upp störfum fyrir 8 dögum síðan. Logi Ólafs er mættur aftur í Víkinga og stýrir þeim í sínum fyrsta leik í dag.

Hægt er að fylgjast með beinni textalýsingu

Logi Ólafsson gerir 3 breytingar á liði Víkings frá tapinu gegn Breiðablik. Róbert Örn, Milos og Erlingur koma inn fyrir Kristófer Karl, Muhammed og Gunnlaug Fannar.

Túfa gerir tvær breytingar á liði sínu frá tapinu gegn Stjörnunni í síðustu umferð. Hrannar Björn og Almarr koma inn fyrir Bjarka Þór og Archie.

Hjá Víkingum er Jeoffrey Castillion en frá vegna meiðsla. Hjá KA vantar enn Darko Bulatovic en hann hefur misst af síðustu þremur leikjum eftir meiðsli sem hann hlaut eftir ljóta tæklingu frá Ingimundi Níels Óskarssyni í sigri gegn Fjölni.

Byrjunarlið KA:
23. Srdjan Rajkovic (m)
3. Callum Williams
7. Almarr Ormarsson
9. Elfar Árni Aðalsteinsson
10. Hallgrímur Mar Steingrímsson
11. Ásgeir Sigurgeirsson
15. Guðmann Þórisson
20. Aleksandar Trninic
21. Ívar Örn Árnason
22. Hrannar Björn Steingrímsson
28. Emil Lyng

Byrjunarlið Víkings R.:
1. Róbert Örn Óskarsson (m)
3. Ívar Örn Jónsson
5. Milos Ozegovic
6. Halldór Smári Sigurðsson
7. Alex Freyr Hilmarsson
11. Dofri Snorrason
19. Erlingur Agnarsson
21. Arnþór Ingi Kristinsson
22. Alan Lowing
23. Ivica Jovanovic
25. Vladimir Tufegdzic
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner