Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 27. maí 2017 12:30
Magnús Már Einarsson
Kane vann Kante í vali stuðningsmanna
Kane varð markakóngur á tímabilinu.
Kane varð markakóngur á tímabilinu.
Mynd: Getty Images
Harry Kane, framherji Tottenham, hefur verið valinn leikmaður tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni í vali stuðningsmanna.

N'Golo Kante, miðjumaður Chelsea, hefur verið valinn bestur bæði í vali leikmanna og fjölmiðlamanna.

Kane hafði hins vegar betur í vali stuðningsmanna. Hann fékk 16,378 atkvæði af 49 þúsund atkvæðum.

Kante kom næstur í kjörinu með 13,515 atkvæði.

Þar á eftir komu Eden Hazard með 8412 atkvæði, Alexis Sanchez með 6727 atkvæði og Dele Alli með 3507 atkvæði.
Athugasemdir
banner
banner
banner