Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 27. maí 2018 07:30
Gunnar Logi Gylfason
Ronaldinho er ekki að fara að gifta sig
Mynd: Getty Images
Á dögunum bárust fréttir af því að Ronaldinho væri að fara að giftast tveimur konum.

Nú hefur þessi fyrrum landsliðsmaður Brasilíu komið fram og sagt þessa sögu vera lygi þó hann hafi séð skondnu hliðina á málinu.

„Þetta er risastór lygi. Það sem var sagt er lygi," sagði knattspyrnugoðsögnin í viðtali við SporTV.

„Allir í heiminum eru að hringja í mig og senda mér skilaboð, það er fyndið. Ég er ekki að fara að gifta mig!"

Brasilíumaðurinn vann gullknöttinn sem besti leikmaður heims árið 2005 en hann lagði skóna á hilluna árið 2015.
Athugasemdir
banner
banner
banner