Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 27. júní 2016 23:53
Jóhann Ingi Hafþórsson
Nice
Birkir Bjarna: Magnað hvernig við snérum þessu við
Icelandair
Birkir Már í leiknum áðan.
Birkir Már í leiknum áðan.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Birkir Bjarnason spjallaði við Fótbolta.net eftir leikinn gegn Englandi í kvöld.

Eins og allir vita, vann Ísland 2-1 sigur eftir að England komst yfir alveg í byrjun.

Við spurðum Birki hvernig stemningin var í klefanum eftir leik.

„Það var rólegt þegar við komum inn í klefa, við vorum búnir að fagna svo mikið útí að það var frekar rólegt."

„Þetta er stórkostlegt, við sýnum enn og aftur að við erum með frábært lið og við getum unnið hvaða lið sem er. Við verjumst frábærlega og sýnum að við getum spilað mjög góðan fótbolta á móti hvaða liði sem er."

Eins og áður segir, komst England yfir snemma leik og spurðum við Birki hvernig það var að koma til baka.

„Það var magnað hvernig við gátum snúið þessu við á móti svona sterku liði og halda þessu út."

Honum líst vel á að spila á móti Frakklandi í 8-liða úrslitum.

„Mjög vel, það er gaman að spila á móti svona þjóðum og við vitum að við getum unnið þá og við gerum það bara," sagði Birkir að lokum.

Fótbolti.net er með öflugt teymi á Evrópumótinu og færir ykkur fjölmargar fréttir daglega. Einnig er fylgst grannt með gegnum helstu samskiptamiðla.
- Vertu með okkur á Twitter með því að nota kassamerkið #fotboltinet fyrir færslur um mótið.
- Fótbolti.net á Snapchat: Fotboltinet
- Fótbolti.net á Instagram: Smelltu hér til að sjá .Net á Instagram.
Fótbolti.net á Facebook: Smelltu hér til að fara á heimasvæði Fótbolta.net á Facebook.

FARÐU Á EM SÍÐU FÓTBOLTA.NET
Athugasemdir
banner
banner