Enskir fjölmiðlar eru að sjálfsögðu byrjaðir að tala um vítaspyrnukeppni fyrir leik kvöldsins gegn Íslandi. Englendingar hafa frá því árið 1990 dottið sex sinnum út á stórmóti eftir vítaspyrnukeppni.
Á EM 2012 datt England út eftir vítaspyrnukeppni gegn Ítalíu en þar klúðruðu Ashley Young og Ashley Cole á punktinum.
Á EM 2012 datt England út eftir vítaspyrnukeppni gegn Ítalíu en þar klúðruðu Ashley Young og Ashley Cole á punktinum.
„England hefur tapað sex af síðustu sjö vítaspyrnukeppnum og ég er aldrei bjartsýnn fyrir vítaspyrnukeppni," sagði Henry Winter hjá The Times í viðtali við Fótbolta.net í gær.
„Eric Dier, Wayne Rooney og Harry Kane eru allir góðir á vítapunktinum og við erum með góðan markvörð en ef England vinnur í vítaspyrnukeppni þá verður það mesta ævintýri mótsins."
Töp Englendinga í vítaspyrnukeppnum frá 1990
HM 1990 Vestur-Þýskaland
EM 1996 Þýskaland
HM 1998 Argentína
EM 2004 Portúgal
HM 2006 Portúgal
EM 2012 Ítalía
Sjá einnig:
Henry Winter: Heimsendir ef Ísland vinnur England
Athugasemdir