Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 27. júní 2016 23:04
Elvar Geir Magnússon
Nice
Jói Berg: Ég missti af veislunni!
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jóhann Berg Guðmundsson fékk ekki að fagna með liðinu eftir sigurinn sögulega gegn Englandi í kvöld. Jói var settur í lyfjapróf en hann var einnig settur í lyfjapróf eftir sigurinn gegn Austurríki.

„Ég missti af veislunni! Það verður bara að taka því. Ég veit ekki af hverju ég er alltaf að lenda í þessu?" sagði Jóhann Berg Guðmundsson.

„Það var sætt að henda Englendingum út en við höfðum trú á því allan tímann og erum ekkert það hissa á þessu. Ég held að það sé óhætt að segja að þetta sé stærsta afrek í íslenskri íþróttasögu."

„Við sátum bara til baka og það var ekkert mál. Þeir voru ekkert að skapa sér og eftir að við komumst í 2-1 vorum við með góða stjórn á leiknum."

Ísland mætir Frakklandi í 8-liða úrslitum.

„Við förum í alla leiki til að vinna og gerum það sama í þessum leik gegn Frökkum. Við erum ágætis lið þegar við reynum á okkur og við sýndum það í dag. Það skiptir ekki máli hverjir mótherjarnir eru, við eigum möguleika. Vonandi getum við klárað Frakka og farið í undanúrslit. Það væri draumur."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner