Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 27. júní 2016 21:59
Magnús Már Einarsson
Kante og Rami í banni - Allir með Íslandi
Icelandair
Kante verður í jakkafötunum á sunnudag.
Kante verður í jakkafötunum á sunnudag.
Mynd: Getty Images
N'Golo Kante, miðjumaður Leicester, og Adil Rami, varnarmaður Sevilla, verða báðir í leikbanni þegar Frakkar mæta Íslendingum í 8-liða úrslitum EM á Stade de France á sunnudag.

Þeir fengu báðir sitt annað gula spjald í leiknum gegn Írum í gær.

Rami og Kante voru báðir í byrjunarliðinu gegn Írum en sá síðarnefndi var tekinn af velli í hálfleik.

Gylfi Þór Sigurðsson og Aron Einar Gunnarsson fengu gula spjaldið í liði Íslands í kvöld en þeir höfðu ekki fengið spjald fyrir leikinn.

Níu leikmenn í byrjunarliði Íslands eru nú á gulu spjaldi fyrir leikinn gegn Frökkum.
Athugasemdir
banner
banner
banner