Ísland mætir Frökkum í 8-liða úrslitum á EM á sunnudag klukkan 19:00 að íslenskum tíma.
Ljóst er að fjömargir Íslendingar ætla að gera sér ferð á leikinn auk þess sem margir Íslendingar sem eru í Frakklandi ætla að framlengja dvöl sína þar.
Ljóst er að fjömargir Íslendingar ætla að gera sér ferð á leikinn auk þess sem margir Íslendingar sem eru í Frakklandi ætla að framlengja dvöl sína þar.
Ísland sigraði England í Nice í kvöld fyrir framan 35 þúsund manns en mun færri Íslendingar komust að en vildu.
Á sunnudag verður spilað á Stade de France sem tekur 81 þúsund manns í sæti.
Ekki hefur verið gefið út hvenær miðasala hefst á leikinn.
Ísland á góðar minningar frá Stade de France eftir 2-1 sigur á Austurríki þar í síðustu viku.
Athugasemdir