Enskir fjölmiðlar hafa mjög gaman að nafnahefðinni á Englandi og hafa mikið verið í orðaleikjum á mótinu þar sem allir leikmenn Íslands (fyrir utan Eið) hefur „son" endinguna.
Á vefsíðunni barriesview.com má sjá hvað leikmenn Englands myndu heita ef farið væri eftir íslenskri nafnahefð á Englandi.
Á vefsíðunni barriesview.com má sjá hvað leikmenn Englands myndu heita ef farið væri eftir íslenskri nafnahefð á Englandi.
Þar með verður Wayne Rooney að Wayne Thomasson.
Þess má geta að Ísland setti met á EM í fyrsta leik þegar allir leikmenn í byrjunarliði Íslands höfðu sömu þrjá stafina í endingu nafna sinna! Ekki amalegt.
Hér að neðan má sjá mögulegt byrjunarlið Englands í kvöld samkvæmt íslenskri nafnahefð en þess ber að geta að Barrie fann ekki út hvað pabbi Gary Cahill heitir og lét því John Stones í liðið.
Athugasemdir