Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 27. júní 2016 06:00
Arnar Geir Halldórsson
Sjáðu mörkin: Frábær hjólhestaspyrna tryggði Þór sigur á Fjarðabyggð
Gunnar Örvar Stefánsson
Gunnar Örvar Stefánsson
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Þórsarar héldu áfram sigurgöngu sinni í Inkasso deildinni á laugardag þegar liðið vann dramatískan 3-2 sigur á Fjarðabyggð.

Þetta var fimmti sigur Þórs í röð og situr liðið í öðru sæti deildarinnar, með jafnmörg stig og erkifjendurnir í KA sem tróna á toppnum vegna betri markatölu.

Gunnar Örvar Stefánsson var hetja Þórsara á Eskjuvelli en hann skoraði stórkostlegt sigurmark á 90.mínútu eftir að hafa komið inná sem varamaður.

Hér fyrir neðan má sjá myndband sem heimasíða Þórs tók saman með helstu atriðum leiksins.


Athugasemdir
banner
banner
banner