mán 27. júní 2016 23:35
Elvar Geir Magnússon
Nice
Versti landsleikur á ferli Rooney - Joe Hart fékk 0,5
Icelandair
Wayne Rooney, fyrirliði Englands.
Wayne Rooney, fyrirliði Englands.
Mynd: Getty Images
Enskir fjölmiðlar rakka landsliðið í sig fyrir frammistöðu þess gegn Íslandi í kvöld. Daily Star er ekkert að spara það í einkunnagjöf eftir leikinn.

Markvörðurinn Joe Hart fær 0,5 í einkunn en hann var langt frá því að vera sannfærandi í leiknum og fær mikla gagnrýni fyrir að hafa ekki gert betur þegar Kolbeinn Sigþórsson skoraði sigurmarkið.

Wayne Rooney fær 1 í einkunn og segir í umsögn að þetta hafi verið hans versti leikur á ferlinum.

Harry Kane heillaði ekki heldur og fær 2 frá Daily Star.

Aðrar einkunnir: Walker 4, Cahill 5, Smalling 5, Rose 5, Dier 6, Alli 5, Sterling 4, Sturridge 4, Wilshere 6, Vardy 5.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner