Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 27. júní 2017 22:24
Þórarinn Jónas Ásgeirsson
1.deild kvenna: Þróttur vann í Keflavík
Michaela Mansfield skoraði fyrir Þrótt í kvöld
Michaela Mansfield skoraði fyrir Þrótt í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Þrír leikir fóru fram í 1.deild kvenna í kvöld.

Sindrakonur fengu Tindastól í heimsókn í fyrsta leik dagsins. Þar var dramatíkin alls ráðandi en sigurmarkið þar kom í uppbótartíma. Heimakonur byrjuðu leikinn betur og komust yfir eftir fimm mínútna leik með marki frá Chestley Strother. Skagafirðingar komu hins vegar til baka með tveimur mörkum. Fyrst var það Kolbrún Ósk Hjaltadóttir sem jafnaði leikinn og Madison Cannon kom þeim svo yfir á 21. mínútu. Chestley Strother jafnaði svo leikinn fyrir Sindra í byrjun seinni hálfleiks. Það var svo í uppbótartíma sem Sindra tókst að knýja fram sigur en þá skoraði Shameeka Fishley úr vítaspyrnu og tryggði Hornfirðingum stigin þrjú.

Upp á Skaga var Vesturlandsslagur á milli ÍA og Víkings frá Ólafsvík. Þar voru það Skagakonur sem höfðu betur 4-2. Unnbjörg Jóna Ómarsdóttir kom gestunum yfir í leiknum og þannig var staðan í hálfleik. Ruth Þórðar Þórðardóttir kom svo ÍA yfir með tveimur mörkum í byrjun síðari hálfleiks áður en Bergdís Fanney Einarsdóttir kom þeim í 3-1. Regína Sigurðardóttir minnkaði svo muninn fyrir Ólafsvíkinga þegar sjö mínútur voru eftir en það var síðan Maren Leósdóttir sem gulltryggði sigur Skagakvenna með marki í uppbótartíma.

Þróttur gerði síðan góða ferð suður með sjó og sigraði lið Keflavíkur á Nettóvellinum. Það Michaela Mansfield sem skoraði sigurmarkið rétt fyrir lok fyrri hálfleiks.

Sindri 3-2 Tindastóll
1-0 Chestley Strother ('5)
1-1 Kolbrún Ósk Hjaltadóttir ('8)
1-2 Madison Cannon ('21)
2-2 Chestley Strother ('49)
3-2 Shameeka Fishley ('90)

ÍA 4-2 Víkingur Ólafsvík
0-1 Unnbjörg Jóna Ómarsdóttir ('27)
1-1 Ruth Þórðar Þórðardóttir ('52)
2-1 Ruth Þórðar Þórðardóttir ('57)
3-1 Bergdís Fanney Einarsdóttir ('66)
3-2 Regína Sigurðardóttir ('83)
4-2 Maren Leósdóttir ('90)

Keflavík 0-1 Þróttur Reykjavík
0-1 Michaela Mansfield ('45)

Úrslit og markaskorarar fengnir af urslit.net
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner