Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   þri 27. júní 2017 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Alcacer ætlar ekki að fara - Hrósar MSN
Alcacer er ekki á förum frá Barcelona.
Alcacer er ekki á förum frá Barcelona.
Mynd: Getty Images
Paco Alcacer fékk ekki mörg tækifæri hjá Barcelona á síðasta tímabili. Það er kannski ekki skrýtið þar keppinautar hans í sóknarleiknum eru þrír af bestu leikmönnum heims.

Þrátt fyrir þetta ætlar Alcacer ekki að fara neitt.

„Ég er með besta sóknarmann í heimi fyrir framan mig, til hægri er besti leikmaður í heimi og sá til vinstri verður bestur í framtíðinni," sagði Alcacer í viðtali við Marca.

„Ég verð að leggja hart að mér á hverjum degi til að vera undirbúinn þegar ég fæ tækifæri til að spila."

„Það eru forréttindi að fá að taka þátt í þessu og vonast til að vera hér í mörg ár til viðbótar. Ég er mjög ánægður."

„Að geta sagt fólki að ég hafi spilað með Leo, Luis og Ney er eitthvað sem fáir leikmenn geta sagt."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner