Sevilla hafa tilkynnt opinberlega að þeir hafi náð samkomulagi við Inter Milan um kaup á miðjumanninum Ever Banega. Hann kemur því aftur til félagsins eftir einungis ársdvöl á Ítalíu.
Argentínumaðurinn gekk til liðs við Inter síðasta sumar eftir að samningur hans við Sevilla rann út. Eftir að hafa ekki alveg liðið vel á Ítalíu í vetur er hann því aftur á leið til Andalúsíu og skrifar undir þriggja ára samning við Sevilla.
Banega mun kosta spænska liðið um 9 milljónir evra en hann var lykilmaður hjá liðinu frá árunum 2014-2016. Hann lék þá 59 leiki fyrir félagið og skoraði 8 mörk.
Athugasemdir