Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 27. júní 2017 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Marseille kaupir Germain frá Mónakó (Staðfest)
Mættur til Marseille.
Mættur til Marseille.
Mynd: Getty Images
Marseille hefur gengið frá kaupum á sóknarmanninum Valere Germain frá Mónakó. Þetta var staðfest í gær.

Hann skrifar undir fjögurra ára samning, en kaupverðið er ekki gefið upp að þessu sinni.

Hinn 27 ára gamli Germain spilaði 200 deildarleiki á tíma sínum hjá Mónakó og skoraði í þeim 49 mörk.

Hann hefur eytt stærstum hluta ferils síns hjá Mónakó, en hann var um stutt skeið á láni hjá Nice, tímabilið 2015/16.

Hann er fyrsti leikmaðurinn sem Marseille kaupir í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner