„Það vantaði herslumuninn. Þær eru með góðan framherja sem að klárar sín færi og er stórhættuleg. Annars fannst mér við ekki vera síðra liðið,“ sagði KR-ingurinn Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir eftir tveggja marka tap í hörkuleik gegn ÍBV.
Lestu um leikinn: KR 0 - 2 ÍBV
KR gaf ÍBV alvöru leik eftir slaka frammistöðu í síðustu umferð og Ólína var ánægð með þá svörun.
„Við lögðum upp með það að byrja af krafti og bæta upp fyrir síðasta leik. Mér fannst við gera það, alveg klárt mál. Bara svekkjandi að fá á sig þessi mörk,“ sagði hægri bakvörðurinn sem átti sjálf frábæran leik í kvöld. Hún vildi þó ekki gera mikið úr eigin afrekum en fagnaði því að hafa spilað í heilan leik.
„Ég er sátt við að hafa þraukað 90 mínútur. Það er framför,“ sagði Ólína létt. „Ég veit ekki með sjálfa mig en ég er stolt af liðinu mínu fyrir að hafa stigið upp efir síðasta leik sem var erfiður og sýnt karakter. Það er það sem skiptir máli og við bætum bara ofan á þetta.“
Aðspurð um deildina í sumar segir Ólína hana vera sterkari en áður.
„Ég sé ekki að neitt lið sé lélegt. Það eru allir að reyna að spila góðan fótbolta og þetta er mikið sterkari deild heldur en hefur verið, finnst mér. Allir leikir eru erfiðir og það virðist vera topplið á eftir toppliði. Það er bara skemmtilegt og gerir okkur betri,“ sagði Ólína sem er handviss um að KR-ingum muni vegna betur í stigasöfnun í síðari umferð Íslandsmótsins.
„Ég veit að stigin koma í seinni umferðinni.“
Nánar er rætt við Ólínu í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir