Nafnarnir Nathan Redmond og Nathaniel Chalobah eru báðir tæpir fyrir undanúrslitaleik enska U-21 árs landsliðsins gegn Þýskalandi á Evrópumótinu, sem stendur yfir í Póllandi, í dag.
Þeir þurftu báðir að fara af velli þegar England vann gríðarlega mikilvægan sigur gegn Póllandi á fimmtudag.
Þeir þurftu báðir að fara af velli þegar England vann gríðarlega mikilvægan sigur gegn Póllandi á fimmtudag.
Þeir æfðu með enska liðinu í gær, en óljóst er hvort þeir spili í dag.
England á gríðarlega erfiðan leik fyrir höndum í dag. Liðið mætir ógnarsterkum Þjóðverjum í Tychy kl. 16:00.
Aidy Boothroyd þjálfari liðsins er bjartsýnn á sigur.
„Ég vona að við getum framkvæmt leikplanið. Ef við getum gert það þá eigum við góðan möguleika," sagði Boothroyd í gær.
Athugasemdir