Torino hefur formlega gengið frá kaupum á ítalska landsliðsmarkverðinum Salvatore Sirigu frá Paris Saint-Germain.
Markvörðurinn fundaði með ítalska félaginu í gær og gekkst undir læknisskoðun í morgun.
Sirigu er þrítugur og hefur leikið 17 landsleiki fyrir Ítalíu. Hann hefur verið samningsbundinn PSG síðan 2011.
Joe Hart varði mark Torino á síðasta tímabili en hann var á lánssamningi frá Manchester City.
Torinho hafnaði í níunda sæti ítölsku A-deildarinnar síðasta tímabil.
Athugasemdir