Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 27. júlí 2014 16:00
Grímur Már Þórólfsson
Eto'o stefnt vegna mansals og dreifingu nektarmynda
Eto'o stendur í ströngu
Eto'o stendur í ströngu
Mynd: Getty Images
Fyrrum kærasta Samuel Eto'o, Helen Nathalie Koah hefur stefnt leikmanninum en hún sakar hann um mansal, birtingu nektarmynda, hótanir og fjárkúgun. Var stefnan birt í síðustu viku fyrir dómi í Kamerún.

Megin sönnunargögn Koah fyrir þessum ásökunum eru nektarmyndir sem birtust á Facebook en Koah telur að Samuel Eto'o hafi verið þar að verki.

Samuel Eto'o hefur neitað þessum ásökunum og hefur gagnstefnt Koah fyrir að draga að sér fé. Eto'o á að hafa látið hana fá fé til að búa til góðgerðarsjóð

Eto'o er án félags eins og er hann yfirgaf Chelsea í sumar. Þá hefur hann verið orðaður við Roma en hann virðist vera með hugann við allt annað en fótbolta þessa dagana.
Athugasemdir
banner
banner