Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   sun 27. júlí 2014 14:05
Magnús Már Einarsson
Loic Remy ekki til Liverpool
Mynd: Getty Images
Sky Sports greinir frá því í dag að Liverpool sé búið að hætta við að kaupa framherjann Loic Remy frá QPR.

Félögin höfðu náð samkomulagi um kaupverð upp á 8,5 milljónir punda og Remy fór í læknisskoðun hjá Liverpool í síðustu viku.

Samkvæmt frétt Sky féll Remy hins vegar á læknisskoðuninni og því verður ekkert af kaupunum.

Hinn 27 ára gamli Remy var í láni hjá Newcastle á síðasta tímabili en hann kom til QPR í janúar árið 2013.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner