Þórsarar voru í tómu tjóni gegn Fjölni í Pepsi-deildinni í kvöld. Þór er í fallsæti og tapaði leiknum 4-1 en staðan í hálfleik var 3-0. Páll Viðar Gíslason hafði þetta að segja eftir leik:
„Það stóð ekki steinn yfir steini hvorki varnarlega né sóknarlega og það vantaði alla baráttu. Ég er orðlaus yfir því hvernig við mætum í svona leik sem er upp á líf og dauða. Ef við spilum áfam svona liggur leiðin bara í eina átt. Það er hægt að nota öll lýsingarorð, þetta var sennilega okkar lélegasti fyrri hálfleik."
„Ég er sár yfir því hvernig við mætum inn í þennan leik. Menn komu með allt niðrum sig í leikinn og það er eitthvað meira en lítið að. Þetta var mjög sanngjarn sigur, Fjölnismenn vildu þetta meira en við."
„Við ætlum ekki að kasta handklæðinu. Við eigum Fram í næsta leik og við verðum að gera eitthvað allt annað þar en við gerðum í dag."
Viðtalið má sjá í heildina hér að ofan.
Athugasemdir