Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   sun 27. júlí 2014 19:45
Magnús Már Einarsson
Rúnar Páll: Vil segja sem minnst um rauða spjaldið
Rúnar Páll Sigmundsson.
Rúnar Páll Sigmundsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Svenni var öflugur í markinu sem og varnarlínan og allt liðið," sagði Rúnar Páll Sigmundsson þjálfari Stjörnunnar eftir 2-0 sigur á ÍBV í kvöld.

Hinn 19 ára gamli Sveinn Sigurður Jóhannesson var í markinu í dag í fjarveru Ingvars Jónssonar sem er lítillega meiddur.

,,Svenni er öflugur markmaður. Ég var með hann í 2. flokki í fyrra og veit hvað hann getur. Hann hefur tekið miklum framförum og þessi strákur sýndi í dag að hann getur spilað í Pepsi-deildinni."

Michael Præst, fyrirliði Stjörnunnar, fékk tvö gul spjöld í síðari hálfleiknum og þar með rautt. Rúnar Páll vildi lítið tjá sig um rauða spjaldið.

,,Ég vil segja sem minnst um það og dómgæsluna yfir höfuð. Við getum spilað illa og hann dæmdi ekki vel í dag, því miður."

,,Þeir eru með sterkt lið og okkur hlakkar mikið til að mæta þeim hér á fimmtudaginn. Það verður hrikalega spennandi. Ég vonast eftir svipaðri stemningu og var hérna á fimmtudaginn," sagði Rúnar.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner